Þjónusta í nágrenni
Það er hverjum og einum mikilvægt að eldast farsællega og búa við lífsgæði og aðgengi að þeirri þjónustu sem hæfir á hverjum tíma. Tengingin við þjónustumiðstöðina að Nesvöllum gefur fólki tækifæri til virkni á eigin forsendum og möguleika á að stunda félgasstarf, hreyfingu og fá nýjar áskoranir til þess að setja áfram markmið í lífinu.
Á Nesvöllum er meðal annars staðsettar snyrti- og hárgreiðslustofur ásamt dagdvöl aldraðra.
Þar er jafnframt hægt að komast í margskonar afþreyingu eins og billjard, leikfimi og listsköpun.
Verslanir, bakarí og apótek eru í göngufjarlægð.

Virkur lífsstíll
Þjónustumiðstöðin að Nesvöllum býður upp á margskonar þjónustu og afþreyingu. Þar má meðal annars nefna aðgengi að lækni tvisvar í mánuði. Íbúar geta keypt hádegismat og hárgreiðslu- og snyrtistofa er í húsinu ásamt breiðu úrvali af skemmtilegri afþreyingu. Hægt er að fara í leikfimi, dansa, spila og njóta tónlistaratriða.
Félagsstarf aldrarða er með skrifstofur í húsinu og standa þeir fyrir margskonar vettvangsferðum eins og í leikhús og á ýmsa viðburði.
Þá er einnig dagdvöl aldrarða í húsinu.
Heilsa og snyrting
Á Nesvöllum er aðgengi að lækni tvisvar sinnum í mánuði.
Snyrtistofan Laufið býður upp á ýmsa þjónustu eins og fótsnyrtingu og andlitsböð.
Það er ekki heldur langt að fara í klippingu og lagningu á hárgreiðslustofuna Elegans.
Virkni
Hægt er að skella sér í leikfimi tvisvar í viku og dansa einu sinni í viku.
Einnig er boðið reglulega upp á bingó, spilavist og föstudagsgleði sem gjarnan skartar tónlistaratriði.
Þá eru líka hópar fyrir þá sem hafa áhuga á því að prjóna, spila boccia eða billjard.
Gönguhópur er starfræktur og fer í göngur tvisvar í viku.
Listasmiðja
Listasmiðjan býður upp á kennslu og möguleika á að stunda allskonar handverk. Þar er meðal annars hægt að vinna keramik og mála postulín.
Í nágrenninu
Í göngufæri eru matvöruverslanir, fatabúðir og ÁTVR. Þá er líka í verslunarkjarnanum að Krossmóum ritfangaverslun, bókabúð og veitingastaður.
Einnig eru bakarí og tvö apótek nærri.