Grunnur að góðum efri árum

Íbúðirnar að Njarðarvöllum 6 eru hannaðar fyrir fólk sem gjarnan er að draga saman seglin og minnka við sig. Fólk sem vill að nábýlið styrki sig og gefi þeim tækifæri til þess að þroskast og eldast með reisn.

Nálægð íbúðanna við þjónustumiðstöðina að Nesvöllum gefur fólki möguleika til þess að sinna líkamlegum og félagslegum þörfum því svo sannarlega er maður manns gaman.

 

 

 

 

Arkitekt segir frá:

Grímur Magnússon einn af arkitektum hússins segir frá áherslum í hönnun og hvernig þríhyrningslaga svalir hámarka sólarstundir og útsýni.

 

Hönnun hússins

Nýbyggingin að Njarðarvöllum er um 6000 fermetrar og rúmar 54 íbúðir með bílastæði og geymslur í kjallara.

Íbúðirnar eru frá 42 upp í 102 fermetrar, 2ja til 3ja herbergja, fullbúnar með gæða innréttingum og gólfefni frá Parka. Raftækin eru frá Siemens og bað- og blöndunartæki frá Grohe. Lyfta er í húsinu. Stórar svalir fylgja hverri íbúð.

Svalirnar eru þríhyrningslaga til að hámarka birtu og útsýni. Þær hafa timburklæðningu sem skapar hlýleika. Þær svalir sem snúa að aðalgötunni eru þegar með svalarlokunum en íbúar hafa einnig möguleika til að  loka þeim sem snúa að garðinum.

Húsið er klætt hvítri álklæðningu sem hefur þá kosti að vera viðhaldslítil.

Inngarðurinn er ríkur af gróðri og skartar litlum púttvellli þar sem hægt er að njóta samvista.

Innangengt er í þjónustumiðstöð aldraðra að Nesvöllum.